PokerStars.com er skemmtilegur og öruggur staður til að spila póker við fólk hvaðanæva að úr heiminum, upp á raunverulega peninga eða leikpeninga. Við vitum vel að það er fullt af stöðum þar sem þú getur spilað póker á netinu en PokerStars er sá eini þar sem komið er fram við þig eins og þá pókerstjörnu sem þú ert! Við höfum komið saman áhugasömu og færu þjónustuteymi og erum með besta vefpókerhugbúnaðinn með fjölbreyttustu aðgerðunum, allt til að þú haldir áfram að spila á pókersvæðinu okkar.
Við erum stærsta pókervefsvæði í heimi með milljónir meðlima um allan heim. Hinn 30. desember 2007 komumst við í Heimsmetabók Guinness fyrir að hafa verið með flesta spilara að spila samtímis á netinu á PokerStars – 151.758!
PokerStars er skráð og löglegt fyrirtæki með aðsetur á eynni Mön á Bretlandseyjum. Við förum að þeim lögum og reglum sem gilda þar sem við erum með rekstur.
PokerStars er ekki netspilavíti. Gagnstætt því sem gerist í netspilavítum er aldrei spilað við húsið á PokerStars – alltaf er spilað við aðra raunverulega pókerspilara um víða veröld. PokerStars fær þóknun fyrir að hýsa pókerspil milli spilara með því að innheimta hlut af hverjum raunverulegum peningapotti. Það er ekkert gjald tekið fyrir þátttöku í leikpeningapókernum okkar. Í rauninni hvetjum við þig til að prófa leikpeningaspilin okkar, sérstaklega ef þú ert byrjandi í póker.
Við erum stolt af því að bjóða upp á mörg ólík pókerspil, þar á meðal Texas Hold'em, Omaha, Stud, Draw og ýmis blönduð tilbrigði. Mörk okkar í raunverulegum peningum eru allt frá $0,01/$0,02 til $200/$400. Nánari upplýsingar eru á síðunni Pókersalur.
Ef þú ert með einhverjar spurningar um PokerStars skaltu hafa samband við support@pokerstars.com.
Ef þú vilt hlaða niður ókeypis pókerhugbúnaði okkar og fylgjast með á PokerStars skaltu fara á
niðurhleðslusíðuna. Ekki er krafist skráningar til að skoða pókerspilin okkar, því ekki að athuga þau? Spilaðu póker við þá bestu. Spilaðu á PokerStars!
